Post

Árshátíðarferð til Frakklands: Dagur 1 Byrjum þennan dag á Smothie Bowl hjá Höllu, mjög ljúffengt 🤤

Röggi byrjar hann hins vegar á djúhúhúúúsí pizzu og kóki! Hún lyktar dásamlega en Jesús hvað þetta er ekki eitthvað sem maginn minn kallar á í morgunmat 😅

Mér finnst ég smá vera týnd hérna, er búin að fljúga út fyrir Shengen síðustu 3 skiptin sem ég fór út svo ég man varla hvenær ég var bara hérna uppi á annarri hæð allan tíman síðast.

Það er íslenskt bongó í París = 18° og léttskýjað 👌

0 reposts7 likes

Jæja, borgaði sig sannarlega að ferðast bara með handfarangur, fyrstu 7 sem komu útúr flugstöðinni fengu að ferðast yfir á hótelið með taxa - 2 tíma ferðalag í air-conditioned, rúmgóðum bíl frekar en í sveittri rútu ✨

Búin að tékka okkur inn á ágætis hóteli, við erum í herbergi sem hannað er fyrir fatlaða svo þar er amk mjög mikið pláss. Núna erum við röltuð yfir í gamla bæinn að fá okkur hádegis/kvöldmat í sólinni 🙏

Staðurinn sem við borðuðum á hét Le Gaulois en við erum einmitt í Galleu svo það var viðeigandi að lógóið væri hjálmur svipaður þeim sem við þekkjum úr Ástríki og Steinríki 👌