Alex 🏳️‍⚧️🐶

Alex 🏳️‍⚧️🐶

@alexirisar.bsky.social

geðveikur, einhverfur, trans einstaklingur með hundáráttu ~

268 followers152 following1.7K posts

Ég vil ekki vera á lífi. Ég veit ekki hvað er að mér, mér ætti að líða vel. Það er ekkert "að" í lífinu mínu. En ég vildi að ég væri ekki hérna. Ég held ég geti þetta ekki í alvöru

Í Kveik í kvöld verður aðeins fjallað um mál hans Arnars, sem ég þekkti vel, en hann bjó í búsetuúrræði á vegum Reykjavíkurborgar. Hann hafði sagt starfsfólki þar að honum liði mjög illa, hafði einnig haft samband við að stendur sem höfðu miklar áhyggjur og létu úrræðið vita af þessu.

En því miður var hann látinn afskiptalaus, enginn athugaði með hann og því miður komst amma hans ekki til hans þó hún hefði viljað það. Það var ekki fyrr en hún hringdi í 112 sem einhver athugaði með hann - alltof seint. Hann hafði tekið eigið líf. Það hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta!

Er einhver á Concerta og hefur tekið samheitalyf í staðinn með góðum árangri? Hef heyrt svo slæmar sögur, en ekki séns að ég geti leyst út Concerta í næsta mánuði því ég er að fara aftur í þrep eitt... Hef ekki efni á því

Skrifaði undir samning í dag varðandi notendastýrðar stuðningsinnlagnir og get því óskað eftir innlögn í gegnum email *áður en* það verður krísuástand. Innlögn varir þá í þrjá sólarhringa og að hámarki á 4-6 vikna fresti. Held það verði huggun í því að hafa þetta net til að grípa mig!

Er með opið sár sem ég er búinn að vera að skipta um umbúðum á daglega, en núna lítur það frekar illa út og lekur mjög mikið úr því ásamt meiri sársauka. Er búinn að vera að reyna að fá hjúkrunarfræðing til þess að kíkja á það í 3klst en minn hjúkrunarfræðingur er alltaf upptekin. :)

Er búinn að vera með skin care rútínu síðustu vikur og held það sé að gera mér gott! Skeggið (sem ég er nýlega búinn að raka) er líka hægt og rólega að færast hærra upp kinnarnar ✨

Talaði við sálfræðing hjá transteyminu í dag til að meta hvort ég sé á góðum stað andlega og skilji hvað legnám felur í sér osfrv, var metinn hæfur fyrir legnám svo núna er bara að bíða 🥺

Kennel hósti hefur verið að smitast grimmt á milli hunda hér á landi undanfarnar vikur. Ég vonaðist til að sleppa við þetta en nei, litli hvolpurinn minn er með kennel hósta og hin tvö munu líklega líka fara að sýna einkenni. 🥲

Framtíð er búin að vera hérna í heila viku en það er í alvöru eins og hún hafi alltaf verið hérna. 🥺 Hún er mjög blíð en með svakalegt attitude, algjör orkubolti og alltaf með skottið á milljón. Dýrka hana. Maybe og Háski eru að taka þetta allt í sátt, Háski reynir að leika en gengur brösuglega

Framtíð er búin að vera hérna í nokkra daga núna og hún er fullkomin. 10 vikna í dag og sefur alla nóttina, gerir stykkin sín að mestu úti, alltaf með skottið á fleygiferð. Líka svo ljúf og skemmtileg. 🥰

Er á leiðinni í end of life session með schnauzer, sem er erfitt eitt og sér en sérstaklega erfitt núna - á morgun er eitt ár síðan Aska, líka schnauzer, dó. Þarf að reyna að grenja ekki og gera allt vandræðalegt. Væri ekki gaman að fá reviews sem væri bara "grenjaði mikið"??? 😭