👽Fannar Dauðyfli 👻

👽Fannar Dauðyfli 👻

@edlifannarra.com

Langbesti hreyfihamlaði paunktrommarinn í 105. Börn/Dauðyflin/D7Y/Guðir hins nýja tíma. (Hán)

243 followers141 following839 posts

Nýja Totalitär platan hljómar nákvæmlega eins og allt annað sem bandið hefur gefið frá sér síðustu 40 árin. Enda óþarfi að breyta því sem er fullkomið. Geðveik plata

Sýningin mín Djöflasýra fyrir hálfvita opnar í Söluturninum Gallerí á föstudaginn kl 17 sem hluti af Myndasöguhátíð Siglufjarðar. Ég ætla að sýna nokkur tússpennamálverk sem ég hef verið að vinna

Ég var búið að eyrnamerkja tvær vikur í að klára bingóforritið mitt fyrir Bingó og teikna á myndasöguhátíðinni á Sigló um næstu helgi en svo var ég með mega flensu alla síðustu viku og kom engu í verk og núna er ég að skíta í mig af stressi

Ég pantaði allar fjórar omnibus bækurnar af No. 5 eftir Taiyo Matsumoto í gegnum Nexus. Þetta er svo fáránlega gott dót. Einn uppáhalds teiknarinn minn. Hann nefnir Moebius sem áhrifavald og það er augljóst en frjálslegar pennastrokurnar minna mig mjög mikið á Hugo Pratt

Það er bara sama úrval af bíó hér og í almenna farrýminu. Mættu bjóða upp á Criterion Channel. Heldur Icelandair að við ríkisbubbarnir nennum að sóa tíma okkar yfir Wedding Crashers????

Ég hata alla þessa sérvisku í kringum pointera í C. Það eru eflaust mjög góðar ástæður fyrir þessu en ég nota mest lua sem er örugglega mesta svona "þetta reddast" forritunarmál heims þannig ég skil aldrei neitt í neinu

Sum svona þjónustuvers e-mail frá stórum alþjóðafyrirtækjum eru orðin svo bilað væmin eitthvað að þau láta þjónustufulltrúa hljóma eins og maður hafi sent þeim mynd af sér með skammbyssu beinda að höfði hundsins þeirra

Mér finnst leiðinlegt að ég hef ekki fundið eina youtube rás sem er að vinna með Cartoonist Kayfabe formattið: ítarlegar greiningar á myndasögum frá sjónarhorni fólks sem hefur það að atvinnu að teikna myndasögur. Manben er gott en þar er mun þrengri fókus og færri þættir

Semjum ljóð um fegurð rigningarblautra pappaumbúða sem liggja ofan í framkvæmdarskurði eða nautnanna við að panta vonda pizzu því þú nennir ekki út og vondi pizzastaðurinn er sá eini með skítsæmilega heimsendingaþjónustu

Teiknaðar stuttmyndir eða stuttar teiknimyndir? Allavegana þetta er vanmetið listform og mér finnst sorglegt hvað það er erfitt að sjá mörg verk. Ég var að horfa á Dieu est timide eftir Jocelyn Charles og hún er ótrúlega falleg og áhrifarík. Hún á eftir að sitja í mér held ég

Ég veit að veðrið hér í Reykjavík í júlí er búið að vera heldur dapurt en sumarið er samt svo geggjuð árstíð. Að skjótast á bolnum út í bakarí og finna sæta gróðurlyktina þegar ég geng undir trén sem teygja sig yfir gangstéttarnar *kokkakoss*

Ég horfði á School on Fire eftir Ringo Lam. Hún er mun meira yfirþyrmandi og níhílískari en ég bjóst við. Ég hef ekki séð margar myndir eftir hann en þessi er held ég uppáhalds. Full Contact er í öðru sæti og City on Fire í þriðja

Það er ógeðslega fyndið að það hafi verið orkudrykkur sem hét HIV. Mögulega skelfilegasta markaðssetningarákvörðun Íslandssögunnar. Btw ég er að hefja framleiðslu á nýjum gosdrykkjum: Covid Cola og Ebólsín

Það ætti að vera LAN tjald á Norðanpaunki. Borðtölvur tengdar í fjöltengjaskrímsli tengt í ógeðslega háværan bensínrafal og svo bara quake 2 deathmatch alla helgina. Missa af öllum böndunum

Ég er búið að taka morgna í sátt síðan ég sneri sólarhringnum mínum á hefðbundnari tíma í apríl. En mér finnst ennþá ég þurfa að sofa lengur og ég á erfiðara með að finna djúpan fókus

Eitt það besta við að alast upp á heimili með Amiga tölvu var að setja diskettuna í og þá kom eitthvað cracktro með bilað harðri technotónlist áður en ég gat spilað Mikka Mús litaleikinn minn