Ragnhildur Hólmgeirsdóttir

Ragnhildur Hólmgeirsdóttir

@rakeldur.bsky.social

Allt um 18. öldina. Brúnar myndir af brúnu hrafnasparki. Ég vinn hjá Þjóðskjalasafni Íslands að útgáfu Yfirrréttarins á Íslandi, tíu binda ritröð sem spannar öll dómsmál Yfirréttarins frá 1690-1800.

1K followers1.5K following2.2K posts

Pinned

Margir hafa komið að máli við mig og spurt hvernig Yfirrétturinn líti út. (Þeas vinkona mín spurði mig í sundi í fyrradag.) Ritstjórnarregla 1, 2 og 3 er að svona bók getur mest verið sirka 680 blaðsíður og við troðum eins mörgum árum og hægt er í hvert bindi.

„Stefnist þér til að þola dóm um þær lagasektir sem þér með yðar breytni við mig forþénað hafið“ Er það bara ég, eða er er 18. aldar lögfræðiíslenska skrítnasta og mest ávanabindandi málsnið sem þetta sker hefur af sér alið? (Ég tek fram að tilvitnunin er stytt um 2/3)

View full thread

Líkskoðanir og áverkaskoðanir voru þær aðferðir sem var beitt og stundum var greint frá aðstæðum á vettvangi líkfundar. Ég hef ekki þurft að lesa margar þannig en það er alltaf, ja ég veit ekki hvað ég á að segja. Áhrifamikið, í einhverjum skilningi.

Morðinu á Kristínu Sigurðardóttur, sem þessi Steingrímur var grunaður um, var áfrýjað til Yfirréttar en ég held að það hafi aldrei verið tekið fyrir, svo ég mun líklega aldrei vita meira um þetta mál.

Fólk á 18. öld gerði sér afar vel grein fyrir því að það gat ekki sannað morð með þeim rannsóknaraðferðum sem þeim stóð til boða (þeim var samt beitt). Þar af leiðandi voru morðingjar almennt ekki sakfelldir nema þeir játuðu og það gerðu þeir harðsvíruðustu einfaldlega ekki.

En Ragnhildur, spyrjið þið full meðaumkunar, er ekki ferlegt að þurfa stöðugt að vera að fletta upp nýjum 8 manna settum af þingvitnum að Mörk í Kleifarhreppi í V-Skaft., þegar þú ert á síðustu stundu að klára nafnaskrá í sakamáli í Múlasýslu? Er ekki óþægilegt að skoppa svona á milli landshluta?

View full thread

En Ragnhildur, spyrjið þið full meðaumkunar, er ekki ferlegt að þurfa stöðugt að vera að fletta upp nýjum 8 manna settum af þingvitnum að Mörk í Kleifarhreppi í V-Skaft., þegar þú ert á síðustu stundu að klára nafnaskrá í sakamáli í Múlasýslu? Er ekki óþægilegt að skoppa svona á milli landshluta?

En svarið við því er þvert nei, því ekki bara er fjórðungur þessa bindis úr Kleifarhreppi, heldur hefur þessi tiltekni hreppur mögulega komið fyrir í hverju einasta bindi Yfirréttarins. Ég þekki þá feðga Svein og Alexander ágætlega og þarf bara að gera control+F.

Fyrir árið 1670 er enginn þekktur með nafninu Gunnar Ólafsson. Þrír þekktir með nafninu á 17. öld og 15 á 18. öld. En það er ljóst að nafnið er á hraðri uppleið á síðasta áratug aldarinnar, þegar vitað er um 7 drengi sem gefið er þetta nafn. (Maðurinn sem ég var að leita að er GÓ númer 4)

Facebook memories að minna mig á að fyrir 7 árum vann ég á Kvennasögusafni. Þetta var eitt af mörgum prentuðum tækifæriskortum í safni Elínar Briem (1856-1937), kennara og höfundar. Ég flokkaði og skráði einkaskjalasafn hennar, tvímælalaust einn af hápunktum ævi minnar.

View full thread

Forstöðukona Kvennasögusafns sótti skjölin í heimahús 2018, þar sem þau voru geymd í ónotuðu herbergi og höfðu legið öll í graut í mublu sem Elín átti. Ég sorteraði safnið upp úr plastpokum og þessi ævintýralega aðkoma og lífshlaup Elínar og þjóðfélagsstaða gerðu þetta að once in a lifetime dæmi.

Facebook memories að minna mig á að fyrir 7 árum vann ég á Kvennasögusafni. Þetta var eitt af mörgum prentuðum tækifæriskortum í safni Elínar Briem (1856-1937), kennara og höfundar. Ég flokkaði og skráði einkaskjalasafn hennar, tvímælalaust einn af hápunktum ævi minnar.

„Hyllti konung í Svefneyjum.“ Ómótstæðileg setning, þyrfti helst að verða að söguþræði í bók eða einhverju. Auðunn Eiríksson stefnuvott árið 1751 finn ég hinsvegar ekki, en nr. 2 gæti svo sem verið afi hans og nr. 3 barnabarn.

Stundum finnst mér svo borðleggjandi að tveir alnafnar með óvenjulegt nafn með hæfilegu millibili og á sama svæði hljóti að vera skyldir, en þegar ég get skoðað það nánar kemur frekar oft í ljós að þeir voru það alls ekki.

Þá er það loksins komið á hreint, það voru þrír menn að nafni Jón Jónsson sem voru mikilvæg vitni í Sunnefumáli: Jón Jónsson, bóndi á Eyvindará Jón Jónsson, bóndi á Ekkjufelli Jón Jónsson, bóndi á Seyðisfirði (Firði í Seyðisfirði)

View full thread

Jón Jónsson í Seyðisfirði gætti Sunnefu þegar hún bjó á Egilsstöðum á Völlum á meðgöngunni og hélt barninu undir skírn. Ég hafð misskilið það svo að JJ á Ekkjufelli og Seyðisfirði væri sami maðurinn.

Þá er það loksins komið á hreint, það voru þrír menn að nafni Jón Jónsson sem voru mikilvæg vitni í Sunnefumáli: Jón Jónsson, bóndi á Eyvindará Jón Jónsson, bóndi á Ekkjufelli Jón Jónsson, bóndi á Seyðisfirði (Firði í Seyðisfirði)

Jón Jónsson á Eyvindará var sagður hafa verið dómsmaður þegar Sunnefa og Jón voru dæmd til dauða fyrir seinna barnið. Jón Jónsson á Ekkjufelli var heimilismaður á Skriðuklaustri þegar systkinin voru þar í varðhaldi og átti að deila rúmi með Jóni Sunnefubróður (sem var auðvitað líka Jónsson)

Ekki finn ég neina konu sem bar nafnið Salný Högnadóttir, en hún vitnaði í Sunnefumáli haustið 1754. Nafnið er samt örugglega rétt hjá okkur því við nánari skoðun eru bæði nöfnin Salný og Högni áberandi vinsæl í Múlasýslu.

Er að leita að Ara Þorleifssyni, þingvitni í Vallnahreppi árið 1754. Og þessi er svo, svo, svo líklegur, nema hvað hann hefði verið 6 ára gamall? Hvað á það að þýða að stríða mér svona! (Búin að tékka líka á Þorsteinsson, Þorgeirsson og Þorvarðsson)

Getur verið að þessi ógæfumaður hafi átt ábyrgan no nonsense eldri bróður og alnafna, sem hefur síðan runnið saman við yngri bróður sinn? (Það má alltaf ímynda sér eitthvað skrítið rugl, svo lengi sem maður lætur ekki prenta það)

Tímapressan orðin svakaleg, en hvað meinarðu eiginlega, Þjóstöðum í Presthólahreppi???

Ragnhildur Hólmgeirsdóttir@rakeldur.bsky.social

Tímapressan orðin svakaleg, ef þetta á að standast deadline. Alveg ótengt þá vorum við að ákveða að ég myndi handvirkt finna út úr því hvort fólk í nafnaskránni hafi búið í Norður-, Mið- eða Suður-Múlasýslu.

Tímapressan orðin svakaleg, ef þetta á að standast deadline. Alveg ótengt þá vorum við að ákveða að ég myndi handvirkt finna út úr því hvort fólk í nafnaskránni hafi búið í Norður-, Mið- eða Suður-Múlasýslu.

View full thread

Verð að segja að ég er slegin yfir því að sá mikli maður Pétur Þorsteinsson hafi þurft að láta sér nægja að sýsla með fjóra hreppa (N-Múl) á meðan fúlmennið Hans Wium var með 13 (M- og S-Múl). Og vogaði sér svo að kvarta undan hvað Pétri gengi miklu betur í lífinu en sér.

Tímapressan orðin svakaleg, ef þetta á að standast deadline. Alveg ótengt þá vorum við að ákveða að ég myndi handvirkt finna út úr því hvort fólk í nafnaskránni hafi búið í Norður-, Mið- eða Suður-Múlasýslu.

Ekki spyrja mig af hverju þetta birtist ekki sjálfvirkt í uppflettigögnum (manntalsvef og sögulegu mann- og bæjatali). Þessi skipting var til staðar og skipti miklu máli, svo ég bjó til þennan gátlista upp úr prentuðu útgáfu manntalsins.

Í manntalinu 1703 voru þrjú „brjóstbörn“, þar af eitt ónafngreint vegna ungs aldurs. Þau er öll sem eitt að finna í einum hreppi, Skriðdalshreppi í Múlasýslu, undir flokknum „Barnamenn öreigar, þó vinnufærir.“

Það hvenær brjóstafjöf lagðist af hér á landi þykir almennt mikil ráðgáta. Mjög sérstakt að þetta orðalag dúkki upp í einum hrepp á öllu landinu, til að lýsa börnum sem eru á framfæri sveitarinnar en þó ekki því þau sjúga mæður sínar.

Kemur í ljós að Þorsteinn Sigurðsson (1678-1765), pabbi Péturs Þorsteinssonar (talsmanns Sunnefu) var einn af þessum áhugaverðu sjálflærðu sýslumönnum. „Lærði um tvítugt dönsku, þýzku og reikning.“

Ekki bara er verið að skipta um glugga heldur er líka verið að rífa upp malbikið beint fyrir utan með höggbor. Þetta kristallar hina sérstöku víxlverkun sem verður af því að vinna í húsi sem sætir stöðugum endurbótum í hverfi sem er að umturnast.

Í þessari fremur ruglingslegu endursögn af samtali tveggja manna á ferð yfir ísilagðan Skötufjörð veturinn 1751-1752, birtist örnefnið Húsatangi, sem ég þurfti að leita að á vef Árnastofnunnar, Nafnið. Þar er því lýst af Sigurjóni Jónssyni, bónda í Kálfavík árið 1936.

Það er ekki til neitt bæjarheiti í Rangárvallasýslu sem gæti hafa afbakast yfir í Hillishöfði í danskri umritun, er það nokkuð? (Stóð upphaflega Höfdabrecke en var leiðrétt) Ég hef skoðað allt H-ið í staðaskrá Jarðabókar Árna og Páls fyrir Rangárvallasýslu en ekkert meikar sens.