Aggi!

Aggi!

@aggi.bsky.social

Artist in Malmö www.arngrimur.is

365 followers392 following1.2K posts

Oft finnst mér ekki hafa neinn tíma. Svo fatta ég að ég er búinn að eyða kvöldinu í að grúska nöfn sem ég fann krotuð á vegg í kjallaranum í blokkinni minni. Komst að því að hér bjuggu sex bræður ásamt foreldrum sínum í 40fm íbúð og einn þeirra skrifaði nöfnin þeirra í aldursröð á vegginn sirka 1948

Gamlar sænskar matreiðslubækur eru Necronomicon matargerðarlistarinnar. Treystir einhver sér til að giska hvað þetta er?

Hey! @asdiso.bsky.social Til hamingju!

Már Örlygsson@maranomynet.bsky.social

Ég vil biðja ykkur náðarsamlegast að andskotast til að óska hinni heittelskuðu @asdiso.bsky.social til hamingju með afmælisdaginn. Bjartur sólargeisli í líf allra í kringum sig. Algert eðaleintak af manneskju. ❤️

Hræðilegt mændfökk: Sat einn inni á kínverskri búllu að slafra eitthvað núðludót í kvöldmat eftir vinnu í gær og inn gengur gömul kona að sækja takeout. Hún sér mig og segir: “Ég fór án þess að kveðja um daginn. Ég sá þig hvergi. Afsakaðu það”. Ég:“ok 🙂 ekkert mál” Svo fór hún. Hver? Hvar? Hvenær?

Jæja, þetta eru síðustu kosningar sem ég tek þátt í á Íslandi áður en ég dett af kjörskrá. Svo eruð þið bara ein á báti.

Kom með hálft kíló af einhverjum íslenskum fríhafnarhjúplakkrís í vinnuna í dag. Þetta er staðan núna:

Aggi!@aggi.bsky.social

@torunnjakobs.bsky.social Vinnan í dag: Þrjár risaplötur af Marabou, einn biti eftir af hverri + einn lakkrís í skál 🇸🇪

Aggi! reposted

Vägra låt högerextremister använda ett terrordåd för att hetsa mot muslimer och invandrare. De bryr sig bara om hbtq-personer om de kan använda oss som slagträ mot andra.

Ég er heima með kvefpest og leiðist í þessari hamfarahlýnun. Skemmtið mér! Viljið þið segja mér eitthvað af handahófi um ykkur eða bara almennt?

Ég skal byrja: Árið 2013 teiknaði ég humal sem var notaður sem merki bruggverksmiðju í Noregi. Bjórinn var á markaði í tíu ár en mér tókst aldrei að ná mér í flösku til að smakka hann eða koma á barinn þeirra sem notaði merkið

Árið 1951 virðist ljósmyndarinn Loftur hafa háð auglýsingastríð við aðra ljósmyndara í Reykjavík. Báðar auglýsingarnar úr Tízkublaðinu Clip.

Ég er ekki að höndla þennan djöfuls hita vel. Allt í einu farinn að hugsa til þess með söknuði þegar ég kom til Íslands með Norrænu um þetta leiti í hittífyrra í blindbyl og snjókomu á Seyðisfirði.

Vinnan í dag. Tvær plötur af Marabou. Einn biti eftir af hverri

Aggi!@aggi.bsky.social

@torunnjakobs.bsky.social Vinnan í dag: Þrjár risaplötur af Marabou, einn biti eftir af hverri + einn lakkrís í skál 🇸🇪

Í öllum lestum á Skáni er 1stk dani að tala ógeðslega hátt um vinnuna sína. Hljóðbókin mín er svona:“a mile behind the house ran a curvy creekOG SÅ HAR HAN SENT ALLE PAPIRE TIL HOVEDKONTORED ALTSÅ thaw, it would surpass its limitations and become aSALES DEPARTMENT KUNDE IKKE FINNE DETwinter months”

Þá er gosbrunnurinn okkar í Malmö fallegri. Hann ku vera minnsti gosbrunnur i heimi og er fyrir utan vinnustaðinn minn. Hann er svo agnarsmár að það leið hálfur mánuður áður en við tókum eftir að borgin er búin að slökkva á honum vegna vatnsskorts í borginni.

Þórarinn Stefánsson@thorarinn.bsky.social

Ég er alls ekki að standa mig sem sérlegur fréttaritari frussbrunnsins í Hafnarstræti, en hann var ræstur án nokkurrar viðhafnar í síðustu viku og frussar nú sem aldrei fyrr. Frárennslið er að sjálfsögðu ekkert betra en áður svo vatnið lekur langar leiðir að niðurfalli.

Það var túristi sem kom til okkar og spurði hvar hann væri. Eftir að starfsfólkið á safninu var búið að gera árangurslausa dauðaleit var haft samband við borgina sem sagði okkur að búið væri að slökkva á honum.

Vinnan í dag: Einn Möndlukubbur

Aggi!@aggi.bsky.social

@torunnjakobs.bsky.social Vinnan í dag: Þrjár risaplötur af Marabou, einn biti eftir af hverri + einn lakkrís í skál 🇸🇪

Hver eru uppáhalds íslensku hljómsveitarnöfnin ykkar? Mín eru klárlega“Sullaveiki Bandormurinn” og “Sauðfé á mjög undir högg að sækja í landi Reykjavíkur”.

Vinnustofan mín er í iðnaðarhelvíti. Malbik, verksmiðjur, lestarteinar, mengun og múrsteinar eins langt og augað eygir. Furðulegasti vorboðinn þar eru útivistartýpur sveipaðar fjällräven, með risabakpoka, tjöld og göngustafi, því að einhver hardcore margra daga gönguleið endar í miðju hverfinu.

Bónusmynd, líka frá því í dag: Einn hlaupbíll

Aggi!@aggi.bsky.social

@torunnjakobs.bsky.social Vinnan í dag: Þrjár risaplötur af Marabou, einn biti eftir af hverri + einn lakkrís í skál 🇸🇪

Vinnan í dag: Einhvers konar vínarbrauð

Aggi!@aggi.bsky.social

@torunnjakobs.bsky.social Vinnan í dag: Þrjár risaplötur af Marabou, einn biti eftir af hverri + einn lakkrís í skál 🇸🇪

Nágrannar mínir setja ajvar á allt á sama hátt og mörlandinn setur kokteilsósu á allt. Verð að segja að ég kann betur að meta ajvar

Vinnan í dag: Agnarsmá kökuflís

Aggi!@aggi.bsky.social

@torunnjakobs.bsky.social Vinnan í dag: Þrjár risaplötur af Marabou, einn biti eftir af hverri + einn lakkrís í skál 🇸🇪

Lína Langsokkur og Emil í Kattholti búa kannski í skógum Svíþjóðar en, eins og allir sem búa í sænskum skógum, versla þau nauðsynjar á stöðum sem líta nákvæmlega svona út.

“Go to hell with your money bastard”. Danish artist Asger Jorn’s telegram to Mr Guggenheim after being informed that his artwork had won the Guggenheim award.

Gore Vidal Sassoon@jimmyjazz1968.bsky.social

Search your camera roll for ‘Hell’

Mér hefur brugðið fyrir tvisvar á street view. Einu sinni hjólandi, og einu sinni fyrir utan galleríið okkar, þá sem hálf-gagnsæ afturganga (lengst til vinstri undir ísfánanum)

Aggi!@aggi.bsky.social

Hér er ég á google street view að hjóla á vinnustofuna mína í gallabuxum.

Neyðarkallinn á lyklakippunni minni er farinn að líkjast afturgöngu sem man gæti rekist á ef man villist í Möðrudalsöræfum

Mér finnst sniðugt að hver einasti íbúi Minneapolis getur núna sett “tilnefnd/ur til friðarverðlauna Nobels” á CV-ið sitt.

Skítaveður og sænsk yfirvöld vara mig við því að geimrusl gæti fallið á mig í dag sirka klukkan 13:00.

Matargagnrýni Agga: Kvöldmaturinn var írönsk sviðasúpa sem ég prufaði af forvitni á búllu í hverfinu mínu. Niðurstaða: “meh” Virðist bara vera sviðakjammi sem er soðinn í algert mauk með smá sítrónu og borðaður með skeið.

Ef einhver saknar stemningarinnar á Hlemmi sirka 2001 þá bendi ég viðkomandi á skiptistöðina við Värnhem í Malmö. Basically alveg eins.